Við sérhæfum okkur í flotun, múrun, flísalögnum og hleðslum.
Við vinnum eingöngu með gæða hráefni sem gefur góða endingu.
Við höfum samanlagt áratuga reynslu af fjölbreyttum verkefnum.
Við klárum verkefnin okkar og skilum þeim 100% frá okkur.
“Við hjá Lavashow fengum þá í mjög krefjandi verkefni þar sem við unnum með sérhannað stuðlaberg og við gætum ekki verið ánægðari með útkomuna” (Gunnar Gylfason)

“Tony og hans menn unnu og lögðu allt stuðlaberg í húsinu sem var sett á veggi, barborð og hraunrennu. Þeir unnu einnig við flotun gólfa og gerðu tröppur. Hugsað í lausnum, gæði og skil vinnu 100%.
Mæli hiklaust með Flísalögn og múrun“„Tony og hans menn unnu og lögðu allt stuðlaberg í húsinu sem var sett á veggi, barborð og hraunrennu. Þeir unnu einnig við flotun gólfa og gerðu tröppur. (Júlíus Ingi Jónsson, Lava show Granda)

“Tony hjá Flísalögn og múrun slf. vann fyrir mig að viðgerð á svalagólfi sem jafnframt er þakplata bílskúrs sem byggður var 1981. Yfirborð plötunnar var orðið illa farið, sprungið og veðrað. Í upphafi veitti Tony afar góð ráð um hvað gera skildi, hans tillaga var rædd, niðurstaða fengin og svo var gengið til verks. Það sem mér finnst mest um vert er að verkið var unnið af mikilli fagmennsku og vandvirkni en svo stóðust líka fullkomlega þær tímasetningar sem lofað var.
Ekki skemmir fyrir að Tony er afar þægilegur í samskiptum og gefur af sér góða áru. Ég mæli með Tony og hans mönnum til vandaðra verka.“
(Eyjólfur Árni Rafnsson)
